Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Blogg

19. september 2008 klukkan 17:27

Átti afmæli í gær og það komu nokkrir gestir og ég bakaði möffins og mamma bakaði köku:) Síðan um kvöldið borðuðum við öll Nings saman , það var geggjað! Síðan sagði Knútur jæja förum aðeins til mín geggjað leyndó eitthvað en já þegar við komum þangað þa voru krakkarnir sem búa þar að bíða og ég bara alveg lost vissi ekkert hvað var í gangi...þá hefði Knútur látið sérpanta köku handa mér sem ég mátti borða útaf öllu ofnæminu...Geðveit sætt og vá þetta var geggjuð kaka! Botn , döðlur , möndlur og fl með bönunum og súkkulaði ofaná!! Þannig að já það var smá boð þarna líka , leynileg afmælisveisla og fékk pakka frá þeim líka eitthvað sem ég var ekkert að búast við en já bara gaman=)
Fékk ótrúlega flotta eyrnalokka í afmælisgjöf frá Knúti , hvítagull með steinum bara flottir!!! Fékk fullt að flottum gjöfum frá öllum , takk fyrir mig!

Svo er ég bara annas að fara að vinna í nótt og á morgun á Apotekinu þannig að þetta verður skemmtileg helgi
Yfir og út-

Klukk

19. september 2008 klukkan 17:17

 

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

 

 

Unglingavinnan
Rúfatalagerinn
Bakarí
Leikskóla

 

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:

 

Allar söng og dansmyndir
Margar góðar grín myndir
Hotel revanda

 

 

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

Ísafjörður
Svíþjóð
Breiðholtið
Nóatún 24

 

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

 

House

Grays ananomy
friends
how I met your mother

 

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

 

Svíþjóð
England
Ítalía
Noregur

 

 

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

 

 


 Myspace
Vísir
job.is
blogg

 

Fernt sem ég held upp á matarkyns:

 

Lax
Brokkolí
soya ís með jarðaberjabragði
kakan sem knútur lét sér panta fyrir mig á afmælinu mínu( svampbotn, möndlur, döðlur, bananar og súkkulaði)

 

 

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:

las Dísa litla þegar ég var lítil það oft að ég´var alltaf að fá nyja og nyja þvi eg of las hana

 

 

Fjórir bloggarar sem ég klukka:
Engann því að það eru allir bunir að þessu

ha? blogg?:O

26. ágúst 2008 klukkan 17:15

Ég hef hlotið þau verðlaun að vera slakasti bloggari íslandssögunar og þakka kærlega fyrir mig !

Í dag var seinast dagurinn minn í vinnunni og ég fór heim eftir minna en klukkutíma vegna þess að ég byrjaði að æla og æla ekki gott það, þarf að fara að kveðja þau betur en á þennann hátt ! he´he Skólasetningin í skólanum mínum átti að vera á morgun en var flutt til fimmtudags vegna þess að það verður tekið á móti landsliðinu a morgun a sama tíma og skólasetningin átti að vera, sem er bara snilld því að nú komast allir til að taka á móti landsliðinuHlæjandi
Fyrsti skóladagurinn er svo 1.sept en í millitíðinni er námskeið í skólanum.
 Ég verð i skolanum á mánudögum og þriðjudögum allt eftir kl 16:30 í vetur og síðan á skólasetningunni hitti ég söngkennarann minn og þá setjum við niður hvenær tímarnir hjá honum koma til með að vera, þannig að núna er ég svona helst að leita mér að vinnu til að vinna með skólanum helst 100% vinnu þar sem að það er hægtHlæjandi 
Og svo erum við knútur farin  að vinna á apotekinu um helgar sem er alveg rosalega fínt , skemmtilegt fólk og góður andi!

Annas hef ég ekkert meira að segja svosem nema kannski það að ég ætla að reina að blogga meira:D heh

adios

Blogg

03. júní 2008 klukkan 17:56
Núna þar sem ég er komin inn í söngskólann í Reykjavík þá hringdi ég aðeins niðureftir til að afla mér fl. upplýsingar og komst að því að vegna þess að ég er að byrja þá er ég í 7 tímum á viku og það kostar heilar 200þúsund krónur takk fyrir ! þannig að nú þarf heldur betur að fara að safna!!!! En eitt sem að er gott við þetta þar sem ég er bara í 7 tímum á viku þá get ég unnið slatta með þessu , og þá þarf ég ekki að hafa miklar áhyggjur af þessari stórupphæð!! En þetta verður gaman og ég er ekkert smá spennt að byrja!
Svo er ég bara alltaf að vinna á leikskólanum og thorvaldsen og svo styttir óðum í það að ég fari til ítalíu , aðeins 25 dagar í það!!!!:D

Komst inní söngskólann í Reykjavík

28. maí 2008 klukkan 16:28

Fékk bréf frá söngskólanum í reykjavík í gær og ég komst inn!!!Hlæjandi Rosa glöð með það!
Er ekkert smá spennt að byrja í þessu sem verður í ágúst !
Annas er ég bara búin að vera að vinna á leikskólanum sem að ég verð að vinna á í sumar og það er rosa fínt bara:D Hef bara ekkert annað að segja þannig að' adios!

Allt að gerast vonandi

19. maí 2008 klukkan 18:01
Var að koma heim úr inntökuprófinu í söngskólanum! og þá er stressið búið og ég get farið að reyna að slaka á aftur hehe! Þetta var voða gaman bara, fór fyrst og æfði með píanó leikara sem að var voðalega næs og hjálpaði mér og gaf mér tips! Síðan fór ég inní sal og söng fyrir framan 10 manns, skólastjórann Garðar Cortes, Bergþór Pálson og fl stórjaxla..eftir að ég var búin að syngja lagið mitt settist Garðar við píanóið og tók tónstiga og fl með mér til að testa röddina mína betur og hvað ég gæti og svona að þessu loknu sagði hann svo að ég hafði staðið mig vel!:D hehe síðan fór ég í tón og takt próf og svo voru teknar nokkrar myndir! en já þetta var bara gaman og ég vona það besta , gott að mesta stressið sé búið og núna bíð ég bara eftir svari sem ég fæ eftir helgi!!
Varðandi hitt inntökuprófið þá er ég bara chicken shit og fór ekki í það  vegna þess að ég fór í einhvern baklás bara og þorði því ekki! Svo er það bara aftur að vinna á morgun og bíð svo bara spennt eftir bréfi!
Næstu helgi er svo útskriftin hennar ástu og ólypiuleikar homma og kjanalegra bjána og snillinga já við erum að tala um eurovison !!!! já ég get ekki beðið
Þannig að já núna er ég komin með vinnu á leikskóla , komin með vinnu á thorvaldsen og bíð bara spennt  hvort ég komist inní söngskólann líka, adios!
Hlæjandi

Hverjir eru vinir manns í raun?og hverjir ekki?

15. maí 2008 klukkan 22:58

Ég fékk vinnunna á leikskólanum og er búin að vinna núna í 2 dag og líkar bara rosavel,voða stuð allt saman!

Fékk bréf frá FÍH  líka og já viti menn ég fer í 2 inntökupróf bæði hjá söngskólanum í rvk og fíh og þau eru bæði 19.Maí kl 13:30!!!!! eitthvað þarft að fiffa það til :/ Núna á ég bara eftir að redda píanónótum af laginu mínu og æfa mig aðeins meira og þá er ég ready 2 rumble!!Glottandi



Hef oft verið að spá, hvað eru vinir? og hverjir eru vinir manns?
vinir hafa samband
Vinir tala saman og vinir eru alltaf til staðar fyrir mann þegar maður þarf á því að halda og maður er alltaf til staðar fyrir þá sömuleiðis.
Fólk sem að hefur aldrei samband að fyrrabragði,hittir mann mjög sjaldann og bara þegar þeim hentar og bara hefur yfirleitt engann áhuga á því að hafa samband og gerir það ekki nema að það sé hringt í það og þá varla svarar,og kallar sig svo vini manns?Þetta hljómar eins og ég sé að tala um einhvern/einhverja hmmm en allaveganna !
Allaveganna ég hef alveg komist að því hverjir eru VINIR mínir og hverjir eru virkilega vinir manns í raun, þig vitið hver þið eruð,kiss kiss !Koss
Jæja nóg að vitleysu best að fara að gera eitthvað yfir og út! allir að kommenta:D

Og til að svara spurningunni hennar ástu á blogginu hennar: þá svarið er já auðvitað , ef ég er ekki að vinna þeas! love you 2!

Stress!

08. maí 2008 klukkan 16:50

Nú er nóg að gera!! Eftir aðeins 11 daga er ég að fara í inntökupróf hjá söngskólanum í rvk og þarf heldur betur að fara að spýta í lófanna!!!
Á sunnudaginn er ég svo að fara í prufu hjá einum ónafngreindum veitingastað/bar niðrí bæ og eftilvill komin með vinnu á einu leikskóla líka þannig að það er bara allt að gerast allt í einu núna, einn daginn hafði ég EKKERT og var bara heima og deyja úr leiðindum og núna virðist allt vera að ganga upp hjá mér..en mest er ég samt kvíðin fyrir inntökuprófinu er svona semí búin að velja lag og þarf að æfa það mjög vel , hef heyrt að lagið skipti engu máli heldur hvernig ég flyt það þannig að það er bara að æfa sig helling...! Svo sótti ég um í FÍH líka þannig að ég er að bíða eftir bréfi frá þeim líka sem að þýðir annað inntökupróf,hvenær sem það verðurHlæjandi Ef þið hafið einhverjar ganglegar upplýsingar fyrir mig megið þið alveg láta mig vita!Glottandi
Annas hef ég voða lítið annað að segja frá núna og ætla að fara að halda áfram að þvo og þrífa, Allir að kommenta svo, koma svo!!!!!Brosandi

Vá Bitra blogg!

15. apríl 2008 klukkan 17:08

Ákváð að henda inn einu bloggi þar sem ég hef bara ekkert að gera..Ég er semsagt búin að vera með hita og einhverja ógeðspest núna í 4 daga og er ekki alveg að fíla það :/ var samt rosa tappi að fara í skólann í gær og var þar alveg allann daginn til 4:15 semsagt en ég veit ekki alveg hvað ég var að spá með því , vegna þess að ég var alveg eins og dauðinn endurfæddur og já erfiður dagur bara ..vaknaði svo verri í morgun þannig að já ekki gott...en nó af veikindartuði..þoli ekki tuð hehe!
 Búin að sækja um sumarvinnu á nokkrum stöðum og ef ég á að vera alveg hreinskilin þá get ég bara ekki beðið eftir því að fara að vinna og til útlanda í sumar því að þessi skóli er bara alltof mikið fyrir mig, er búin að vera að drukkna í heimavinnu alla önnina sem ég ræð ekki við og er bara í alltöf mörgum áföngum en kemur í ljós hvernig prófin fara!

Ætla að fara að brjóta saman þvott og taka smá til ..allir að kommenta svo..

Kynlíf ungafólksings

02. apríl 2008 klukkan 11:21
Ákváð loks að koma með eitt nýtt blogg þar sem að ég verð líklega húðflétt af vinum og vandamönnum ef ég geri það ekki því að þau eru búin að vera á reka mikið á eftir mér undanfarið!
Eins og er þá er ég í skólanum núna í 2földu gati til klukkan 1 og m.a er núna frjáls mæting á rosalegann fyrirlestur í salnum sem ég ákváð bara að sleppa sem kannski útskírir sig sjálft hvers vegna ef þið lesið fallega miðann sem því fylgdi:

Ungt fólk og gott kynlíf.

Jóna Ingibjörg Jónsdóttir kynfræðingur verður með fyrirlestur í hátíðarsal FG miðvikudaginn 2.apríl kl 10:25(umsjónartímanum).
Inngangur , leiðarljós, nokkur hugtök (kynlíf, kynverund etc).
Kynhegðun ungs fólks ( m.a það sem við vitum úr könnunum hérlendis).
Kynlífsviðhorf ungs fólks.
Hvað einkennir "gott kynlíf/jákvætt kynlíf" og hvað býr til góða elskendur.
Almennar umræður og etv. spurningar úr sal fyrir þá sem þora!

Allir sem að mæta fá glaðning í lok fundar.

Forvarnarfulltrúi.



Ok.....SKO! þið getið sko alveg gleymt því að ég fari á svona fund og hlusti eitthvað á: stelpur þið skuluð ekki gera neitt sem þið viljið ekki gera! og það þarf ekki að gera allt því að allir hinir eru að gera það! og ekki gera neitt ef þú ert ekki tilbúin og bla bla bla og hmm hvað ætli glaðningurinn í endann sé???:O hmmmmm...Þegar maður er að verða 20 ára hefur maður alveg farið á svona fyrirlestra úr fyrri skólum og þeir eru allir eins hehe!!
Kannski ég hefði bara átt að skella mér og fara að spyja geggjað mikið og segja fullt af sögum og eitthvað skemmtilegt en það hefði kannski ekkert verið sniðugt ??

Í páskafríinu kynntist ég strák sem að heitir Knútur sem er bara frábær í alla staði og ég bara hélt í alvörunni að það væri ekki til gaur sem að værí jafn klikkaður og ég í þessum heimi en svo var víst:D Og á ég henni Ástu það allt að þakka að við kynntumstGlottandi
Á föstudaginn bauð Knútur mér svo á árshátíð í skólanum hjá sér og það var æðislega gaman ,hún var haldin í Iðu Húsinu og það var allt mjög flott og góður matur..Humarsúpa, lambakjöt og svo súkkulaðigott og ís mmm:P borðaði þetta allt nema humarsúpuna þar sem að hann Knútur er með bráðaofnæmi fyrir öllum fisk og ekki ætlaði ég nú að fara að fá mér og kyssa hann og hætta á það að hann myndi bara kafna einn tveir og bingó...ekki sniðugt það! Eftir ársháíðina fórum við svo með Tryggva og Heiðrúnu á Hressó á ball með Dalton..það var frábært og búningarnir þeirra til sóma, hvítir og flottir með áletrinu: Eign þvottahúss landspítalanna....einhverstaðar hafa þeir sloppið út!
á Laugardaginn fór ég svo í party til Lindu á, þar voru Linda, Kristín,Magga, Ásta, ég , Knútur, Jói, Hannes, Gunni , og það var alveg jafn mikið stuð og alltaf byrjuðum auðvitað á því að finna hattanna okkar og enduðum svo á því að poppa áður en við skelltum okkur svo loksins í bæinn..takk fyrir gott party og við förum ekkert nánar út í það hér að vanda;)
Fórum síðann í bæinn og auðvitað fórum við á Cultura , ég, ásta, hannes , jói og gunni...og linda,magga og kristín eitthvert annað..Svo komst njálgur í liðið og allir vita rest:D hehe
Frábær helgi og þakka ég bara öllu snillingunum mínum kærlega fyrir migKoss
jæja þetta er komið gott í bili og koma svo! Allir að kommenta
Halla María












Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Halla María Guðmundsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Nemi
  • Hjúskaparstaða: Í sambandi með honum Knúti mínum:D
  • Um mig: Ég hef mikinn áhuga á öllu sem að tengist söng, leik og tónlist
  • Annað: Vertu þú sjálfur og enginn annar! :)

Nýjast á HumorPix

Funny Images, I love YouTube Funny Images, Look Cool Riding Anything Funny Images, This is why I don't ride public transportation Funny Images, Before/After Elections Funny Images, When helmets make no sense Funny Images, I actually like some of them but I found this funny!